Allt að gerast og líf fyrir utan Mosó!

Einbeitum okkur að því sem við getum gert í dag þó við gerðum lítið í gær:)

Nú er vika 3 í Stjörnuþjálfun hálfnuð og allt að gerast. Mér er farið að líða betur, finnst tímarnir á námskeiðinu svo skemmtilegir og fjölbreyttir að ég fer glöð í hvern tíma og þvílíkt ánægð út úr þeim.  Missti af tíma á mánudaginn og var bara alveg ómuguleg yfir því. Ég er farin að finna aðeins mun á mér og haldið ykkur fast.......Hef misst 2 og 1/2 kg, ekki skemmir það.

Ég á heima í Mosfellsbæ, vinn í Mosfellsbæ, maðurinn minn fæddur og uppalinn í Mosfellsbæ, börnin mín í gagnfræða og framhaldsskóla í Mosfellsbæ og næstum öll tengdafjölskyldan mín á heima í Mosfellsbæ. En það er víst líf fyrir utan Mosfellsbæ, þarna fyrir sunnan!!! Já ég komst að því þegar ég byrjaði að fara suður til Reykjavíkur 4 sinnum í viku í Hreyfingu á þetta FRÁBÆRA námskeið. Við stöllurnar skruppum svo saman eftir æfingu í síðustu viku á Krúsku að fá okkur að borða. Krúska á suðurlandsbraut og auðvitað vissi ég ekkert hvar það var og hafði aldrei komið þangað en núna veit ég það og mun svo sannarlega fara þangað aftur. Á boðstólnum er eingöngu lífrænt hráefni og ekkert hvítt hveiti, mikið úrval af grænmetis og kjúklingaréttum og fekk ég mér ofboðslega gott lúxussalat með kjúkling ummmm. Á námskeiðinu stjörnuþjálfun er innifalið dekur í Blue lagoon spa í Hreyfingu og auðvitað hafði ég aldrei komið þangað áður en ég er búin að fara þangað núna og þvílík dásemd. Aha bara búin að vera í  tvær og hálfa viku, allt að gerast og bara alltaf fyrir sunnan á nýjum stöðum.

Ég held glöð áfram því við berum ábyrgð á eigin heilsu.

Kveðja frá ánægðri sveitakonu!!!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún Björg Pálsdóttir

Höfundur

Guðrún Björg Pálsdóttir
Guðrún Björg Pálsdóttir
 Guðrún Björg heiti ég og er ein fimm kvenna sem taka þátt í átakinu stjörnuform. Ég er tæplega 43 ára gömul og hef búið í Mosfellsbæ síðan ég var 13 ára gömul.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband