Já ég get þetta eins og allir aðrir!

Það er betra að spyrja til vegar en að villast eins og einhver sagði. Já ég get sagt að með því að vera á námskeiðinu Stjörnuþjálfun í Hreyfingu hafi mér verið vísað rétta leið áður en ég villtist lengra!!!!!!

Í upphafi átaks setti ég mér markmið fyrir þessar 12 vikur og svei mér þá ef ég er ekki búin að ná FLESTUM og samt rúmar 2 vikur eftir af átakinu frábæra. Árangurinn lætur ekki á sér standa og horfi ég á tölurnar á blaðinu aftur og aftur alveg UNDRANDI en vigtin, málbandið og fituprósentan segir satt er það ekki? Jú örugglega....

Þetta er bara snilld og ekki stendur á mér að setja mér ný markmið en stæðsta markmiðið mitt var þegar ég byrjaði var að vera í mínu besta FORMI 43 ára!!! Það eru 26 dagar í það og er ég spennt að vita hvort það takist en ég var/er ekki að tala um KÍLÓIN því ég á nú alveg nokkur auka eftir heldur FORM. Því auðvitað hef ég verið ung og LÉTT en ekki í formi. Þetta eru stór orð og stór markmið en miðað við árangur minn í GETU, STYRKLEIKA og ÞOLI á þessum tæpum 10 vikum þá hef ég trú á mér:)

Ég veit alveg hvað verður efst á óskalistanum mínum fyrir þessi jól....Klárlega verður það námskeið í Stjörnuþjálfun eftir áramót. Hér með er ég búin að koma því á framfæri hvað mig langar í jólapakkann minn þessi jól svo það ætti ekki að vera neinn höfuðverkur fyrir ykkur sem langar svo mikið að gefa mér góða jólagjöf:))))))

Nú er bara að halda áfram og svei mér þá ef ég gæti ekki bara gert þetta að áhugamáli. Ekki væri amalegt að áhugamálið væri eigin heilsa og vellíðan. Vááá mér finnst gaman að taka á því jiiiii er ég að skrifa þetta orð og ég er farin að hafa trú á mér, ég get þetta, HEPPIN ég þessu hefði ég aldrei trúað, TRÚIÐ mér!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún Björg Pálsdóttir

Höfundur

Guðrún Björg Pálsdóttir
Guðrún Björg Pálsdóttir
 Guðrún Björg heiti ég og er ein fimm kvenna sem taka þátt í átakinu stjörnuform. Ég er tæplega 43 ára gömul og hef búið í Mosfellsbæ síðan ég var 13 ára gömul.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband